19.02.2007 23:47:09 / berglind

*****Váááááá!

** :D 

Hæææ ;) 

  • Erum við að tala um dauða,
    dauða, bara steindauða síðu eða ?!
  •  Jáb held það ! 
  • Nú Ebba, Hanna og Ingibjörg eru hættar..
  • Var í sjokki þegar ég sá ''uppsagnarbloggið'' þeirra !!
  • Ég byrjaði í fibblunum (Y)

    Eeeeeen ....
    Eins og allir vita þá var bolludagurinn í dag svo bara sprengidagur eftir hálftíma ;D
    Fór inná ísó klukkan hálf 3 í bolludagskaffi hjá ömmu og var innfrá til e-ð um 6 :)
    Amma keypti nóg, MEIRA en nóg af bollum en það var bara gott að geta sprengt sig svona svaðlega :P
    Einnig keypti mamma nammi fyrir maskana.  Fengum heilar 3 heimsóknir, veit hvað þið eruð að hugsa ( vó þau eru alltof vinsæl ! ) En það er bara svona með sumt fólk :)
    Svo fengum við okkur bara snarl, skyr og brauð ;)
    Ömmm já, það er nú soldið liðið síðan seinasta bloggið var á þessari síðu svo ég reyni að koma með e-ð skemmtilegt og spennandi :)
    Var með henni Hönnu í gærkvöldi, voða fínt bara, fórum útá sjoppu og fórum svo heim til mín á msn að tot fleppa í gjellzzum og gæjum :o :'D
     Svo vita þetta náttla allir en vetrafríið er brátt á enda en get ekki neitað því
    að ég hafi haft það bara gott :D 
     Á föstudeginum fór ég í afmæli hjá Ingólfi.  Fórum í póker, horfðum á Home Alone 3 og borðuðum pizzur og nammi :P
    Á laugardeginum vaknaði ég um 11 leitið fór fram og fékk mér að borða svo fór ég að taka til í geymsluni,,, yay,,, (Y) ;/
    Þegar því var lokið fór ég bara í sturtu og svo man ég bara ekkert hvað ég gerði eftir það :D
    Á sunnudeginum var ég bara heima eins og daginn áður, fór svo þarna út með Hönnu og svo aftur heim og já :)
    Þá er þetta bara komið :)

    Veit, leiðinlegt blogg en allavega blogg, riiiight ? (A):)
    Berglind ;**

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 17:57:24 / hanna

:*

Við Ebba,Hanna&Imba ætlum að hætta í Rosadas, engin er ástæðan nema að við gerum aldrei neitt hérna. Ekkert útaf ykkur stelpur eða neitt ;) En bara Takk fyrir okkur ;):*

Hanna,Ebba og Imba :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 15:12:15 / kristín

Helgarfrí.p

hallo,hallo..

ákvað að blogga bara þar sem mér leiðist svo hrikalega,mamma og þau farin og Emil ekki komin..

en allavegana helgin leggst bara mjog vel i mig,ein heima hérna með Emil og hafa það næs. Vorum í stærðfræði prófi í morgun og það gekk bara þó nokkuð vel þrátt fyrir getu mína í þessari namsgrein. Svo er það bara islenskan a þriðjudaginn..

En humm, hef voðalega lítið að segja..
Er komin í einhvern vorfýling, þar sem það er allt autt hér á götum og hvergi ber vott um Febrúar , snjómáðnuðinn sjálfan.
Get ekki beðið eftir sumrinu. Hef nú að mestu planað sumarið
Klára bara 9.bekkinn þá tekur við útlandaferð með Emil og svo bara vinna og vinna . er að vísu ekki búinn að fá 100% vinnu en er búin að sækja um á nokkrum stöðum svo ég þori alveg að segjast vera alveg örugg..

Ekkert mikið sem maður hefur nú að segja þessa dagana , hugurinn er aðalega við profin. Vona að ég komi sem best ut.
En ég lánaði Köhuku mína yfir helgina eða allavegana framm á laugardagskvöld eða sunnudagsmorgun. Leyfði Pétri að taka hana með sér ,þannig að ég dúsi bara í borðtölvunni og verð lummó. En ég ætla nú samt ekki að hanga í tölvunni um helgina, reyna að cjilla bara og hafa það kósí..

en stelpur eruði hættar eða hvað:D?

jæja nægur tími og ekkert að gera.. ætla að fara upp og gera einhvað að viti þangað til Emil kemur .
hafið það gott um helgina

Kristín.



"Happy island"
væri ekki á móti því að hoppa bara í flug og hafa það næs á hamingju eyju sko :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 22:24:32 / viktoria

próf.

Jæja þá eru prófin gengin í garð :/ byrjuðum eiginlega á þriðjudaginn en þá var kaflapróf í náttúrufræði svo í morgun var ensku sagnapróf og danska hlustun svo á morgun verður landafræði og náttúrufræði kaflapróf.

En í gær var merkur dagur þar sem að sundlaug bolungarvíkur varð 30.ára :D og var sýnt hvernig garðurinn verður :D var að skoða það áðan´, ekkert smá flott ;D.

Áðan byrjaði fótboltaæfingarnar hjá okkur , sveitta æfing sko :D er í engu formi en lifi æfinguna af:) svo skelltum við Kristín okkur bara í pottinn svo heim í mat.

Og já aðeins um leikinn gegn dönum , strákarnir okkar mega eiga það að þeir stóðu sig frábærlega nema í vörninni hvað var það nú eiginlega ? en Snorri Steinn Guðjónson átti leikinn bara heil 15 mörk frá drengnum :D og talandi um handbolta mér finnst ömurlegast í heimi að við töpuðum á móti þjóðverjum :O og ojj hárið á Hens.

hér sjáiði hárið á sjálfum Pascal Hens frá þýskalandi

En hef eiginlega ekkert að segja , nema að Mæja fer suður á mrg að eiga litla "bróðir minn ":D bíð spennt. en Pepper Dennis er að byrja þannig ;D

-Viktoria Kristín

 

Hæææ :D vil koma því á framfæri fyrir þá sem misstu af Pepper Dennis og horfa á þessa þætti þá giftu Pepper og Babcock sig í þætinum :D...

aww:D

-Viktoria ;D


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 20:45:37 / kristín

Elska Emil ;*

Hæhæ,síðan einhvað í dauðari kanntinum er það ekki;D

En ókey, minni á nýju meðlimina á fibblunum;D til hamingju með það ;*

Ennn ætla aðeins að segja aðeins frá því sem hefur verið að gerast ;D

ég endaði skólan á föstudaginn og fór þaðan bein á Mánagull að nýta gjafabréfð og er komin með þessar fínu gelneglur, þær bögga mig þó sodið þar sem ég á í mestu vandræðum með að skrifa á tölvuna mína og símann , á erfitt með að setja á mig varasalva og hneppa buxunum mínum;D hehe en svona er þetta , venst ábyggilega með tímanum. En eftir 2 og hálfan tíma á snyrtistöfunni fór ég heim og Emil kom svo fljótlega eftir það ..

Ég byrjaði á að elda fyrir hann þónokkuð góðan mat þó ég segji sjálf frá og svo fljótega eftir það fórum við á mammút og svo fórum við bara út einhvað að rúnta með Viktoriu kíktum inná ísajörð fórum svo heim .
Laugardagurinn var einnig fínn, afmli hjá Pétri, Pítsur og kökur og svona ;D ég ,viktoria og emil skelltum okkur auðvitað þangað þar sem græðgin í kökur og pítsu lét nú ekki undan:D

En svo sit ég bara hérna í herbergnu mínu í miðjum kíðum að blogga , ætla bara að skella mér í sturtu af því loknu og fara svo kannski bara snemma í háttin:D?
En Ættum við ekki að fara koma með útlitsbreytingarnar.:D?

Ætlaði ekkert að hafa þetta langt , enda þetta bara .

Vil líka segja hvað mér þykir ótrúlega vænt um alla æí kringum mig.
Elska ykkur stelpur , og Emil ast;*

kristín


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 16:07:30 / ebba

LOOK;)

www.blog.central.is/fibblin allir að kíkja (K)

Nýjir meðlimir

Kv:Fibblin ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 10:41:10 / Imba

Í skólanum =/

Hæhæ;) .. Jæjja .. þá er maður bara í skólanum =/ .. er í stærfræði, fékk bara að leika mér, svona er að vera duglega að læra heima :D .. haha!.. Krakkarnir eru bara að læra í STÆ..:D .. snilld! ..En já ég er að fara í leikfimi eftir smá..Próf takk fyrir ! og ég er ekki með neitt einasta þol sko :S .. Vó áðann vorum við í ensku .. djöfull var það leiðinlegt .. váá! .. ég hef ekkert að seiga maður ..

En vá mamútur í kvöld! allir að koma :D ..

Ætla að fara að gera einhvað anna ðen að blogga ;)..

bless farinn!;)

Stelpur bloggði bara yfir þetta :D .. þetta er bara bull blogg .. hafði ekkert að gera meðan að þið voruð í stærfræði (A):D .. haha!

-Ingibjörg!;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 21:19:04 / viktoria

=)

Góða kveldið:D

Ég byrjaði daginn minn klukkan 07.10 í morgun :$ . Var alltaf að fara inn til Svönu að vekja hana en neinei endaði hun þá ekki bara veik :/ síðan var mamma veik í gær og Guðbergur í morgun :S ég hef sko engann tíma fyrir þessa vitleysu alltof mikið að læra.

En ætla að setja nokkrar myndir inn:D

hahah gamlir tímar :D en á eftir að setja HELLING af svona gömlum myndum hérna inn :D
 
 
 En já svo kom Ollie til mín og við gellz í skólann og eins og alltaf þá rétt náðum við stullur bjöllinni :D . Svo leið skólinn og vitið menn Kristín tók lagið með snoop " im a nice dude" duddurudduudd :D. Síðan var auðvitað leiklist og já krakkarnir voru eitthvað að kvarta um að þetta væri leiðinlegt en jújú þetta var bara fínt , vorum að spinna sögu sem endaði með perrafaraldri :´D ímyndunaraflið að fara með okkur :D.
 

Svo var bara haldið heimáleið og jááá þegar eg kom heim þá stóð á litlum bréfsneppli að kremið mitt væri komið:D:D jeiijj þannig að eftir langt tuð fékk ég Sólveigu til að labba með mér niðreftir að sækja það svo kíktum við aðeins í Bjarnabúð og svo fórum við til okkar heima, ég var mjög dugleg og las bara fyrir ritgerðina sofnaði síðan kl tíu mín í 5 vaknaði svo svona eitthvað sofinkl 18 beint í mat svo sturtu svo læra í dönsku omg totally erfitt :/ en fékk góða hjálp frá Kristínu , Takk:*. Síðan er ég bara hér að bloggast. J

á hann Bjarni heimtaði afmælis blogg en hann varð 16.ára í dag , Til hamingju með það:D

Hey eitt að lokum ég veit að það er skrifað skapahár en ekki segjiði skapahár allaveganna segji ég skaphár ? komment;D

-Viktoria Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:29:39 / kristín

;d

Buenos Días.

Jæja fyrst að engin ætlar að blogga tek ég verkið að mér enn og aftur:D
Það er víst komin Þriðjudagur og það þíðir það að vikan sé hálfnuð á morgun :O vá hvað tímin flýgur. Finnst eins og síðast helgi sé ný búin.


marg framundan.

  • Afmælið hans Péturs á fimmtudaginn
  • það þýðir kökuveisla á laugardaginn
  • Mammútur á næstkomandi föstudag
  • Góð helgi með Emil.
  • prófavika
  • undankeppni Samfés á Hólmavík
  • Afmælið hennar Viktoriu

Og svo margt meira, get ekki beðið eftir að Janúar láti sig hverfa. Finnst það svo leiðinlegur mánuður einhvað. Allt svo dimmt,mikill snjór og leiðinlegt bara;D

En já það hefur nú ekkert afberandi á daga mína drifið , ýmist skóli,heimalærdómur,elska Emil og svo bara komast í gegnum vikuna og dýrka helgarnar.Síðan fara prófin jú að koma og þá tekur af sjálsögðu mikill og strembin lærdómur við. Ætla að reyna að hækka mig aðeins allavega, má alveg við því.
En já get síðan ekki beðið eftir sumrinu, þó svo að það verði lítið um utanlandsferðir þetta árið, verð bara hérna heima í allt sumar að vinna og njóta sumarsins. En maður getur ekki farið til útlanda á hverju ári , því og nú ver og miður.
Ég og Emil tökum bara Hawai á þetta þarnæsta sumar .

En burt frá því séð þá kom nýr strákur í skólann okkar í morgun , gátum að vísu ekki talað við hann þar sem hann talar eingöngu pólsku. Man ekki alveg hvað hann heitir en allavega þá komu þau 2 ný á unglingastigið.

En ég ætla að enda þetta þar sem minn heitt elskaði er frekar despó í símhringingu;D
Elska þig Emil minn:*

virðingarfyllst
Kristín Bjarnadóttir:D

sorry með þennan fjólubláa lit , næ honum ekki af:S

p.s :P

nýtt í um mig


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:47:44 / Imba

Hæhæ;*

Váá.. það er bara laaangt siðan að ég bloggaði sko :S..En ég byrja á því að þakka stelpunum kærlega fyrir mig ;** .. þetta var æðislega gott hjá ykkur stelpur :D;* Kristín hakkaði kjúllan þegar hún var að skeran :'D ..

En já við borðuðum og læti .. síðan fóru Hanna og Ebba á generaprufu .. síðan fórum við bara niður að chilla .. siðan kom Emil .. og við fórum stepurnar og hann fórum útá sjoppu .. aftur heim til Kristínar.. en síðan fórum við aftur útá sjoppu því myndin sem við tókum var bara leiðinleg.. tókum síðan Rauðhettu :'D .. snilld .. bara geðveikt langdreginn :S .. var ekki alveg að fýla það sko ;) .. en síðan fór ég bara heim til mín eftir matarboðið .. og fór  að sofa um ellefuleitið ;) .. síðan vaknði ég aftur um 12 því ég var að deyja í maganum og hausnum :S .. en ég tók bara parkódín forte 8| .. og steinsofnaði.. vaknðaði bara um hálf 11 leitið og horfði á einhverja ömurlega mynd sem var í tv-inu :'D ..

það er ógeðslegt veður úti .. best að halda sé r bara heima ;) .. en ég ætla að skella mér í sturtu eða einhvað ;)

-IngibjörgSnjólaug ;*


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 18:04:40 / Rosadas1

Babycakes.

;Matarboð á morgun klukkan hálfsjö:D

;Flottur matur og alltí sparí;)

bara minna ykkur á það , mætum svo hressar og fínar :P

-lesa bloggið hennar Berglindar ;D

#Sjáumst beibur;D

Elskjú!;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 15:36:11 / berglind

aww :D

Hæhæ allir saman!

Fékk núna bara einhverja löngun til að blogga þannig ég reyni að pikka e-ð hingað inn.
Dagurinn minn byrjaði bara mjög venjulega.  Vaknaði og fór út og hjólaði 1 hring í kringum íþróttahúsið og fór svo á botsja æfingu :') en já fór í skólann klukkan 8 eins og venjulega og dagurinn í dag byrjaði á Samfélagsfræðitíma sem var bara ósköp fínn e-ð :)  Björgvin bara að tala á fullu um Evrópu og e-ð og maður reyndi svona að fylgjast með en svo hætti ég bara að nenna því, gerði bara heimavinnuna og sat svo bara og ,,hlustaði'' á Björgvin :haha:
Svo var sagnarpróf í ensku og mér gekk bara vel í því og svo voru komnar frímínotur :)  Eftir smá hvíld fór ég í 2x dönsku tíma! Takk fyrir sko, en hann reyndist bara vera fínn þar sem við vorum meira og minna bara að tala við Helgu um framhaldskólana og þess háttar og tókum svo bara eina hlustunaræfingu sem var bara fín að mínu mati sko ;)
Svo var bara komið að Íslensku, bókmenntatími og við fórum bara að lesa í Mávahlátri og fengum víst verkefni 2 frá bls. 29-62! og glætan að ég muni hvað við vorum að lesa þá.. :/:D  En maður verður víst að reyna ..
Hádegi-plokkfiskur, sem ég borða ekki þannig ég fékk mér bara rúgbrauð og epli :)
Stelputími-Nýi kennarinn hann Hákon var með einhverja kynningaræðu fyrir okkur og svo var bara komið að leiklistinni.  Finnst ekkert svakalega gaman í þeim tímum en verð bara að segja að þessi hafi verið með þeim skárri:D

Fótboltahófið er svo í dag klukkan 5 niðrí Hrafnaklett.  Ég á víst að koma og held þá að Kristín og Ingibjörg komi líka ? Þetta er víst hófið sem átti að vera í ágúst, en hvað um það:)
Segjum þetta nóg og þið megið bara bæta við bloggið ef þið viljið ;)

-Berglind;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 15:10:12 / kristín

málshættir

Ást er öllum hlutum kærari

Besti vinurinn sem við þekkjum er sá sem þekkir galla okkar og er samt vinur okkar

Átvögl grafa sér gröf með tönnunum


Illur gleðst af annars skaða.

Gömul ósköp grát ei nýjum tárum. 

Fátæks manns festi hefur marga hlekki.

Sönn vinátta er eins og góð heilsa.  Gildi hennar getum við sjaldan metið fyrr en við höfum glatað henni   

Kris´tin

Berglind hérna ;) Skellti bara einhverjum banner á, aðeins tímabundið þannig ykkur er velkomið að breyta sætu mínar ;*:D



 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 18:49:08 / kristín

Lesa bloggið að neðan!

;Sorry Berglind að ég blogga svona yfir þig.

En ég ætlaði bara að segja það að ..

á Föstudaginn ætlum við Viktoria að halda matarboðið okkar sem er soldið lang síðan síðast. sumar ykkar vitið kannski af þessu en það verður á föstó. Gerum svo einhvað suber gaman.
Ekki allar örugglega Game á það?

En sjáumst beibur..

Lesa bloggið hennar Berglindar! ;;

Hénna Ebba og Viktoría (ef ebba er ekki búin að fá þetta :D)

Kynning:

  • Nafn bókar og höfundar
  • Af hverju þú valdir þessa bók
  • Hvernig bók þetta er (ævintýra-, fjölskyldu-, ímyndun/gæti verið-, dýra-, sannsöguleg eða hryllingssaga)

Meginmál:
Hér áttu að skrifa um meginmál sögunnar, þema, söguþráð, umhverfi og persónulýsingar.  Síðan skrifar þú þína skoðun á bókinni.

  • Þema:  Aðalhugmynd sögunar, sumar fjalla um mikilvægi vináttu eða hvernig maður á að bjarga sér úr efiðum aðstæðum.  Hvað finnst þér vera þemað í sögunni og af hverju.
  • Umhverfi:  staður og tími.  Er sagan skrifuð í nútímanum eða fyrr, á hún sér sta í öðru landi eða í ímynduðum heimi? Hvað líður langur tími í sögunni, dagur, ár eða heil lífstíð?
  • Söguþráður:  Hvað gerist í sögunni, hvað er aðalmálið?  Er eitthvert vandamál sem þarf að leysa, hvernig er það leyst?  Hvernig endar sagan? (stundum gefur maður bara í skyn hvernig sagan endar til að gefa ekki of miklar upplýsingar)  Hér þarf þó að passa að endursegja ekki alla söguna.
  • Persónulýsing:  um hvern er sagan?  Hver er aðalpersónan?  Segðu frá henni og stuttlega frá öðrum persónum í sögunni.  Hjálpa aukapersónurnar aðalpersónunni eða eru þær á móti henni?

Lokaorð:
Þegar þetta er búið getur þú skrifað um hvernig þér fannst bókin og af hverju.  Hér eru nokkrar spurningar sem þú gætir svarað:

  • Fannst þér bókin góð? Af hverju - af hverju ekki?
  • Hvað var það besta við bókina? Af hverju?
  • Hvaða áhrif hafði bókin á þig?
  • Myndir þú mæla með bókinni?
  • Viltulesa aðrar bækur eftir sama höfund?
  • Hvað lærðir þú af lestri bókarinnar?

Gjörið svo vel elskur ;*
Berglind-


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 21:08:20 / berglind

Laugardagur :D

Já það er víst laugardagur í dag sem þýðir að það sé sunnudagur á morgunn sem ég þoli ekki ! 

Eins og flestir vita þá var Rósaballið í gær :) Bolungarvíkur krakkarnir voru víst ekki velkomnir og fengum aðeins að heyra það frá 10. bekkingi, 2 kennurum og gæslumaðurinn hann Hemmi sagði okkur bara að muna að hafa e-n forráðamann næst,  en okkur var samt leyft að vera en okkur leið eins og litlum kjúllum þar sem allir horfðu á okkur eins og við værum einhverjir hálfvitar að bora í nefið ! En það sem mér fannst mjög sk´rytið við þetta að við fengum sko formlegt boð á Rósaballið í nóvember sem var svo frestað því að Bolungarvíkurkrakkarnir komust ekki útaf hlíðinni og svo var ekkert látið okkur vita um að boðið hafi verið tekið til baka !:S En skemmti mér nú samt bara mjög vel :D
Deitið mitt var Elli en hann mætti ekki fyrr en um hálf 11-11 (foreldrar) :') Já gaman að þessu, en hann mætti þó.  Ég hélt að hann hafi ekki látið mig vita en komst svo að því að hann sendi mér sms en þar sem ég er búin að týna símanum vissi ég það ekki :/:D   

Svo í dag skellti ég mér á skíði ásamt Ingibjörgu, Ingibjörgu K, Ólöfu og Anítu og það var bara mjög gaman.  Held að ég fari bara aftur á morgunn ef það verður gott veður loksins þegar það er snjór þá verður maður að nýta tækifærið ekki satt :P?
Ég datt 2x! Einu sinni þegar ég var að bruna og einu sinni þegar ég gleymdi að ég var á carving skíðum og beygði of mikið :/:lol: Svo auðvitað þegar ég var að skvetta á Eyrúnu og hún datt á mig :') Það var bara snilld, beyglaði stafinn minn og ég hélt að ég væri búin að eyðileggja hann en pabbi beib lagaði það ;)
Eftir kalda skíðaferð fórum við heim til ömmu&afa og fengum okkur aðeins að borða og svo vorum við bara niðri í sjónvarpsherbergi að horfa á e-ð ömurlegt sjónvarpsefni á skjánum :/:D Hálfbróðir afa(sem ég vissi ekki að hann ætti!) og kona hans komu svo í heimsókn þegar við vorum að fara heim og ég er að segja ykkur það, ég hef aldrei séð mann sem er jafn líkur Ómari Ragnarssyni, ég hélt í alvöru að þeir væru skyldir.  Fór upp og spurði afa að því og hann bara neinei þetta er hálfbróðir minn og ég bara HA?! Já það er svona ..:)

Læt þetta gott heita,
-Berglind;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
RSS tengill